Skrzynka pomysłów
Masz pomysł lub sugestię, jak ulepszyć Bolungarvík? Wyślij anonimową propozycję.
Zastrzeżenie: Wszystkie propozycje są przeglądane przed opublikowaniem na stronie. Nie będziemy publikować propozycji zawierających wskazanie konkretnych osób, ataki osobiste, nieodpowiedni język lub inne treści uznane za nieodpowiednie. Mile widziane są propozycje dotyczące polityki i ulepszeń społecznych.
Pomysły
Oto pomysły, które zostały przesłane. Zagłosuj na te, które najbardziej Ci się podobają.
Laga áratuga gamlar holur á götunum sem eru um allan bæ.
Þjónusta fatlaða
Í Bolungarvík þarf að gera betur í þjónustunni við fatlaða eins og að sjá til þess að SIS mat sé unnið svo að það komi fjármagn í málaflokkinn, til þess að geta gert betur.
Sameining
Sameinast Ísafirði
Motocrossbraut
Það er kominn tími til að aksturíþróttir fái pláss innnan Bolungarvíkur og bærinn aðstoði við að ungir iðkenndur á Motocross hjólum geti komið sér upp æfingasvæði til að stunda íþrótt sína. Á sama tíma myndi draga úr akstri mótorhjóla innanbæjar sem mörgum bæjarbúum finnst óþolan…
Það er kominn tími til að aksturíþróttir fái pláss innnan Bolungarvíkur og bærinn aðstoði við að ungir iðkenndur á Motocross hjólum geti komið sér upp æfingasvæði til að stunda íþrótt sína. Á sama tíma myndi draga úr akstri mótorhjóla innanbæjar sem mörgum bæjarbúum finnst óþolandi sökum hávaða og slysahættu.
Tjaldsvæðið
Mér finnst að það sé hægt að gera betur með reksturinn á tjaldsvæðinu okkar. Það mætti vera virkari innheimta á gjöldum og jafnvel ætti að skoða að fá einkaaðila til að sjá um að reka tjaldsvæðið og losa þannig starfsmenn sundlaugarinnar undan því að sjá um tjaldsvæðið
Smábátar
Tillaga að betri smábáta aðstöðu í Bolungarvík, með bættu aðgengi og öryggi.
Musteri vatns og vellíðunar
Hvernig væri að lengja aftur opnunartíma sundlaugarinnar á virkum dögum, sérstaklega yfir sumarið þegar ferðamenn sækja bæinn heim. Það er eftirsóknarvert að vera með sundlaug sem opin er til klukkan 10 á kvöldin fyrir fólk á ferðalagi og reyndar bæjarbúa líka.
Ruslafötur á gönguleiðum
Það mætti fjölga ruslafötum á gönguleiðum inni í bænum og í næsta nágrenni. Það stuðlar að hreinni bæ og fallegra umhverfi. Það þarf líka að sjá til þess að ruslafötur séu tæmdar reglulega, t.d. einu sinni í viku.
Göngustígar
Það þarf að laga flesta göngustíga hér í bæjarfélaginu,alveg skömm af því hversu lélegir og hreinlega hættulegir sumir eru orðnir!
Frisbí golfvöllur
Það þarf að gera eitthvað fyrir Frisbí golfvöllinn sem er í skógræktinni. Hann er orðinn ónothæfur vegna þess að það er kominn of mikill gróður í kringum körfurnar og brautirnar. Annað hvort þarf að fara í átak í að grisja gróðurinn við brautirnar eða að finna vellinum stað annar…
Það þarf að gera eitthvað fyrir Frisbí golfvöllinn sem er í skógræktinni. Hann er orðinn ónothæfur vegna þess að það er kominn of mikill gróður í kringum körfurnar og brautirnar. Annað hvort þarf að fara í átak í að grisja gróðurinn við brautirnar eða að finna vellinum stað annars staðar í bænum, t.d. nær tjaldsvæðinu
Snyrtimennska
Það ætti að vera markmið í öllum störfum bæjarins að gera hluti snyrtilega. Bærinn þarf ekki að vera rosalega flottur en það myndi bæta útlit bæjarins að hafa umhverfið snyrtilegt. Ekki umhverfisátak heldur innleiða snyrtimennsku hjá bænum
Bæjarstjóraefni
Ráða nýjan, brakandi ferskan óháðan bæjarstjóra
Nýtt gólf í íþróttahúsið
Gólfið í íþróttahúsinu er orðið mjög slitið á mörgum stöðum og vart forsvaranlegt að láta iðkendur nota það lengi í viðbót vegna mikillar meiðslahættu.
Bæta upplýsingaflæði
Það mætti bæta upplýsingaflæði til íbúa bæjarins. Til dæmis eru fundargerðir hjá bænum yfirleitt innihaldslitlar og erfitt að sjá hvað nefndir eru að fjalla um eða samþykkja. Það mætti birta fylgiskjöl með fundargerðum eins og t.d. Ísafjarðarbær gerir til að íbúar geti áttað sig …
Það mætti bæta upplýsingaflæði til íbúa bæjarins. Til dæmis eru fundargerðir hjá bænum yfirleitt innihaldslitlar og erfitt að sjá hvað nefndir eru að fjalla um eða samþykkja. Það mætti birta fylgiskjöl með fundargerðum eins og t.d. Ísafjarðarbær gerir til að íbúar geti áttað sig á málum sem eru til umfjöllunar.
Auka skilvirkni hjá bænum
Stundum finnst mér eins og það megi auka skilvirkni þegar kemur að ýmsum verkum hjá bænum. Af hverju eru ruslafötur ekki tæmdar með reglulegu millibili, af hverju eru ekki skilti ekki rétt af ef þau verða skökk og svo framvegis. Sumt kostar ekkert að laga, það þarf bara að úthlut…
Stundum finnst mér eins og það megi auka skilvirkni þegar kemur að ýmsum verkum hjá bænum. Af hverju eru ruslafötur ekki tæmdar með reglulegu millibili, af hverju eru ekki skilti ekki rétt af ef þau verða skökk og svo framvegis. Sumt kostar ekkert að laga, það þarf bara að úthluta starfsmönnum þessi verkefni
Mannvirkjum sýnt viðeigandi virðing.
Afar leitt hefur verið að fylgjast með Musteri Vatns og Vellíðunar undanfarin ár.
Ekki bara er hægt að fullyrða að almenn þrif séu lakari en í öðrum viðlíka mannvirkjum heldur hefur viðhaldi fasteignar ekki verið sinnt á viðeigandi og fullnægjandi hátt.
Sama er því miður hægt a… Afar leitt hefur verið að fylgjast með Musteri Vatns og Vellíðunar undanfarin ár.
Ekki bara er hægt að fullyrða að almenn þrif séu lakari en í öðrum viðlíka mannvirkjum heldur hefur viðhaldi fasteignar ekki verið sinnt á viðeigandi og fullnægjandi hátt.
Sama er því miður hægt að segja um aðrar fasteignir bæjarins.
Hvernig hyggst framboðið bæta úr þessu óviðunandi ástandi?
Ekki bara er hægt að fullyrða að almenn þrif séu lakari en í öðrum viðlíka mannvirkjum heldur hefur viðhaldi fasteignar ekki verið sinnt á viðeigandi og fullnægjandi hátt.
Sama er því miður hægt a… Afar leitt hefur verið að fylgjast með Musteri Vatns og Vellíðunar undanfarin ár.
Ekki bara er hægt að fullyrða að almenn þrif séu lakari en í öðrum viðlíka mannvirkjum heldur hefur viðhaldi fasteignar ekki verið sinnt á viðeigandi og fullnægjandi hátt.
Sama er því miður hægt að segja um aðrar fasteignir bæjarins.
Hvernig hyggst framboðið bæta úr þessu óviðunandi ástandi?
Aðgengi
Mér finnst fáránlegt að halda framboðsfundi í óaðgengilegur húsnæði fyrir fólk í hjólastól eða með göngugrind, hækjur
Virkjum samfélagið til að skapa betri Bolungarvík
Einn dagur á ári, t.d. einhvern tíma fyrir Markaðshelgi, sem er vel auglýstur fyrir fram þar sem heimamenn taka höndum saman og ráðast á eitthvað fyrirfram ákveðið umbótaverkefni. Auðvitað þyrfti skráning þá líka að eiga sér stað þannig hægt sé að vita hvort þetta verði gert eða …
Einn dagur á ári, t.d. einhvern tíma fyrir Markaðshelgi, sem er vel auglýstur fyrir fram þar sem heimamenn taka höndum saman og ráðast á eitthvað fyrirfram ákveðið umbótaverkefni. Auðvitað þyrfti skráning þá líka að eiga sér stað þannig hægt sé að vita hvort þetta verði gert eða ekki.
Yfir veturinn gæti hafa átt sér stað kosning um umbótatillögur sem berast og væri hægt að framkvæma án mikils kostnaðar gegn því að samfélagið allt taki höndum saman og ráðist í verkefnið saman. Verkefni sem kannski ná ekki forgangi á verkefnalista bæjarins en skipta máli fyrir ásýnd og vellíðan bæjarbúa og gesta bæjarins.
Dæmi: Garðar í misjöfnu ástandi, hreinsun = Bæjarbúar hjálpast að við að slá, klippa tré, taka ruls og annað í görðum bæjarins sem og eigin görðum. Tóm hús/eigendalausir garðar - we do it.
Leiktæki sem eru laus/ónýt/málning flögnuð á róló = Bæjarbúar ráðast í verkefnið saman.
Komum skógræktinni í betra horf
o.s.frv.
Yfir veturinn gæti hafa átt sér stað kosning um umbótatillögur sem berast og væri hægt að framkvæma án mikils kostnaðar gegn því að samfélagið allt taki höndum saman og ráðist í verkefnið saman. Verkefni sem kannski ná ekki forgangi á verkefnalista bæjarins en skipta máli fyrir ásýnd og vellíðan bæjarbúa og gesta bæjarins.
Dæmi: Garðar í misjöfnu ástandi, hreinsun = Bæjarbúar hjálpast að við að slá, klippa tré, taka ruls og annað í görðum bæjarins sem og eigin görðum. Tóm hús/eigendalausir garðar - we do it.
Leiktæki sem eru laus/ónýt/málning flögnuð á róló = Bæjarbúar ráðast í verkefnið saman.
Komum skógræktinni í betra horf
o.s.frv.
Dagvistun
Það þyrfti að skoða dagvistunarmál sérstaklega þeirra sem eru að fara á 5 ára deild og að klára 5 ára deild. Það er mjög langur tími (amk 7 vikur) sem foreldrar þurfa að dekka þegar skóli/leikskóli í frí þar til næsta skólaár hefst. Ekki fjölskylduvænt eins og er núna og ætti að …
Það þyrfti að skoða dagvistunarmál sérstaklega þeirra sem eru að fara á 5 ára deild og að klára 5 ára deild. Það er mjög langur tími (amk 7 vikur) sem foreldrar þurfa að dekka þegar skóli/leikskóli í frí þar til næsta skólaár hefst. Ekki fjölskylduvænt eins og er núna og ætti að vera lítið mál að auka vistun þessara barna.
Betra veður
Þetta veður undanfarið er alveg að fara með okkur. Hvernig væri að færa okkur betra veður og þá þarf ekki að eyða jafn miklum peningum í að moka göturnar. Fá meiri sól í staðinn fyrir snjó, meiri hita og minni kulda. Það væri skemmtilegra en leiðindaveðrið sem er hér núna.