Hugmyndabox

Hefur þú hugmynd eða ábendingu um hvernig megi gera Bolungarvík betri? Sendu inn nafnlausa tillögu.

Fyrirvari: Allar tillögur eru yfirfarðar áður en þær birtast á síðunni. Við munum ekki birta tillögur sem innihalda nafnbirtingu einstaklinga, persónulegar árásir, ósæmilegt orðfæri eða annað efni sem telst óviðeigandi. Tillögur um stefnumál og samfélagslegar umbætur eru vel þegnar.
Hámark 5 000 stafir.
JPG, PNG eða PDF — hámark 100 MB.

Hugmyndir

Hér eru hugmyndir sem hafa borist. Kjóstu um þær sem þér líst best á.

Laga áratuga gamlar holur á götunum sem eru um allan bæ.

5. Mar 2026

Þjónusta fatlaða

Í Bolungarvík þarf að gera betur í þjónustunni við fatlaða eins og að sjá til þess að SIS mat sé unnið svo að það komi fjármagn í málaflokkinn, til þess að geta gert betur.

1. Mar 2026

Sameining

Sameinast Ísafirði

5. Mar 2026

Motocrossbraut

Það er kominn tími til að aksturíþróttir fái pláss innnan Bolungarvíkur og bærinn aðstoði við að ungir iðkenndur á Motocross hjólum geti komið sér upp æfingasvæði til að stunda íþrótt sína. Á sama tíma myndi draga úr akstri mótorhjóla innanbæjar sem mörgum bæjarbúum finnst óþolan…

5. Mar 2026

Tjaldsvæðið

Mér finnst að það sé hægt að gera betur með reksturinn á tjaldsvæðinu okkar. Það mætti vera virkari innheimta á gjöldum og jafnvel ætti að skoða að fá einkaaðila til að sjá um að reka tjaldsvæðið og losa þannig starfsmenn sundlaugarinnar undan því að sjá um tjaldsvæðið

5. Mar 2026

Smábátar

Tillaga að betri smábáta aðstöðu í Bolungarvík, með bættu aðgengi og öryggi.

31. Mar 2026

📎 Sækja viðhengi

Musteri vatns og vellíðunar

Hvernig væri að lengja aftur opnunartíma sundlaugarinnar á virkum dögum, sérstaklega yfir sumarið þegar ferðamenn sækja bæinn heim. Það er eftirsóknarvert að vera með sundlaug sem opin er til klukkan 10 á kvöldin fyrir fólk á ferðalagi og reyndar bæjarbúa líka.

6. Mar 2026

Ruslafötur á gönguleiðum

Það mætti fjölga ruslafötum á gönguleiðum inni í bænum og í næsta nágrenni. Það stuðlar að hreinni bæ og fallegra umhverfi. Það þarf líka að sjá til þess að ruslafötur séu tæmdar reglulega, t.d. einu sinni í viku.

6. Mar 2026

Göngustígar

Það þarf að laga flesta göngustíga hér í bæjarfélaginu,alveg skömm af því hversu lélegir og hreinlega hættulegir sumir eru orðnir!

2. Mar 2026

Frisbí golfvöllur

Það þarf að gera eitthvað fyrir Frisbí golfvöllinn sem er í skógræktinni. Hann er orðinn ónothæfur vegna þess að það er kominn of mikill gróður í kringum körfurnar og brautirnar. Annað hvort þarf að fara í átak í að grisja gróðurinn við brautirnar eða að finna vellinum stað annar…

5. Mar 2026

Snyrtimennska

Það ætti að vera markmið í öllum störfum bæjarins að gera hluti snyrtilega. Bærinn þarf ekki að vera rosalega flottur en það myndi bæta útlit bæjarins að hafa umhverfið snyrtilegt. Ekki umhverfisátak heldur innleiða snyrtimennsku hjá bænum

27. Mar 2026

Bæjarstjóraefni

Ráða nýjan, brakandi ferskan óháðan bæjarstjóra

6. Mar 2026

Nýtt gólf í íþróttahúsið

Gólfið í íþróttahúsinu er orðið mjög slitið á mörgum stöðum og vart forsvaranlegt að láta iðkendur nota það lengi í viðbót vegna mikillar meiðslahættu.

5. Mar 2026

Bæta upplýsingaflæði

Það mætti bæta upplýsingaflæði til íbúa bæjarins. Til dæmis eru fundargerðir hjá bænum yfirleitt innihaldslitlar og erfitt að sjá hvað nefndir eru að fjalla um eða samþykkja. Það mætti birta fylgiskjöl með fundargerðum eins og t.d. Ísafjarðarbær gerir til að íbúar geti áttað sig …

9. Mar 2026

Auka skilvirkni hjá bænum

Stundum finnst mér eins og það megi auka skilvirkni þegar kemur að ýmsum verkum hjá bænum. Af hverju eru ruslafötur ekki tæmdar með reglulegu millibili, af hverju eru ekki skilti ekki rétt af ef þau verða skökk og svo framvegis. Sumt kostar ekkert að laga, það þarf bara að úthlut…

27. Mar 2026

Mannvirkjum sýnt viðeigandi virðing.

Afar leitt hefur verið að fylgjast með Musteri Vatns og Vellíðunar undanfarin ár.
Ekki bara er hægt að fullyrða að almenn þrif séu lakari en í öðrum viðlíka mannvirkjum heldur hefur viðhaldi fasteignar ekki verið sinnt á viðeigandi og fullnægjandi hátt.
Sama er því miður hægt a…

11. Mar 2026

Aðgengi

Mér finnst fáránlegt að halda framboðsfundi í óaðgengilegur húsnæði fyrir fólk í hjólastól eða með göngugrind, hækjur

10. Mar 2026

Virkjum samfélagið til að skapa betri Bolungarvík

Einn dagur á ári, t.d. einhvern tíma fyrir Markaðshelgi, sem er vel auglýstur fyrir fram þar sem heimamenn taka höndum saman og ráðast á eitthvað fyrirfram ákveðið umbótaverkefni. Auðvitað þyrfti skráning þá líka að eiga sér stað þannig hægt sé að vita hvort þetta verði gert eða …

1. Apr 2026

Dagvistun

Það þyrfti að skoða dagvistunarmál sérstaklega þeirra sem eru að fara á 5 ára deild og að klára 5 ára deild. Það er mjög langur tími (amk 7 vikur) sem foreldrar þurfa að dekka þegar skóli/leikskóli í frí þar til næsta skólaár hefst. Ekki fjölskylduvænt eins og er núna og ætti að …

31. Mar 2026

Betra veður

Þetta veður undanfarið er alveg að fara með okkur. Hvernig væri að færa okkur betra veður og þá þarf ekki að eyða jafn miklum peningum í að moka göturnar. Fá meiri sól í staðinn fyrir snjó, meiri hita og minni kulda. Það væri skemmtilegra en leiðindaveðrið sem er hér núna.

27. Mar 2026